Það þekkja allir Lasagna en Fasagna tekur þetta á næsta level með aldeilis frábæru tvisti þar sem bleikja og þorskur leika stórt hlutverk.
HRÁEFNI
Uppskrift fyrir tvo
200 g bleikja
160 g þorskur100 g salt
100 g sykur
5 g dillfræ
5 g fennelfræ
5 g saxað dill100 g rifinn ostur
60 g rifinn cheddar ostur
100 g tómatsalsa
60 g ricotta ostur
30 g smátt skorinn graslaukur
Lasagne plötur
Steikt zucchini (2 zucchini, olía, salt og pipar)
-Auglýsing-
AÐFERÐ
Fiskur
- Útbúið kryddlög úr salti, sykri, dillfræjum, fennelfræjum og dilli.
- Skerið fisk í strimla og veltið upp úr kryddlegi.
- Grafið í 15 mín. í kæli.
- Skolið í köldu vatni og þerrið.
Zucchini
- Skerið fyrst langsum og svo til helminga.
- Steikið á báðum hliðum með olíu, salti og pipar þar til gullinbrúnt.
Fasagne
- Setjið zucchini í botn á eldföstu móti.
- Því næst fer ricotta ostur, graslaukur, ostur og cheddar.
- Setjið fiskinn ofan á ásamt tómatsalsa, ricotta, graslauk og lasagne plötu.
- Þetta er endurtekið tvisvar til viðbótar.
- Að lokum er settur ostur, cheddar, ricotta og tómatsalsa.
- Bakið á 180°C í 40 mín.
Berið fram með salati, brauði og rifnum parmesan osti.
-Auglýsing-