Actavis hefur ákveðið að lækka verð 40 lyfja á markaði hér á landi frá 1. október. Um er að ræða svipaða lækkun og félagið tilkynnti um þann 1. maí. Í tilkynningu frá Actavis kemur fram að breytingar á lyfjalögum geri félaginu þetta kleift en ný lyfjalög tóku gildi 1. október.
Actavis telur að verðlækkun félagsins nú og í maí nemi alls um 200 milljónum króna á ársgrundvelli miðað við heildsöluverð. Meðal lyfja sem lækka má nefna að blóðfitulækkandi lyfið Atacor lækkar um 15%, hjartalyfið Valpress lækkar um 20% og mígrenilyfið Sumacta lækkar um 10%, til viðbótar við 17% lækkun 1. maí.
-Auglýsing-
www.ruv.is 02.10.2008
-Auglýsing-