Það var góð ákvörðun hjá Landspítalanum að heiðra okkur með nærveru sinni á Facebook og þeir hafa líka húmor á spítalanum. Ég tók mig til og fékk lánaðar nokkrar tilvitnanir úr erlendum sjúkraskrám sem þeir höfðu birt okkur til skemmtunar.
Margt skondið leynist í sjúkraskrám…
-Auglýsing-
Hér eru nokkur dæmi utan úr heimi
- Sjúklingurinn fær brjóstverk þegar hún liggur á vinstri hlið í meira en ár…
- Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið……
- Ég verð ánægður þegar ég kemst inn í meltingarveginn hjá henni, hún virðist tilbúin en kvíðin……
- Sjúklingurinn tárast og grætur stöðugt. Henni virðist einnig líða illa……
- Sjúklingurinn neitar krufningu…..
- Sjúklingurinn hefur enga fyrri sögu um sjálfsvíg…
- Sjúklingurinn skildi hvítu blóðkornin sín eftir á öðrum spítala…
- Hún rann í hálku og að mér skilst þá fóru fótleggirnir í sitthvora áttina snemma í desember……
- Sjúklingurinn er með þandar hálsæðar sem ná alveg niður að ökklum….
-Auglýsing-