Tólf björgunar sveitarmenn klifu níu hundruð metra til að aðstoða hjartveikan mann á Sómastaðatindi á Reyðarfirði í kvöld. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, var ásamt tveimur öðrum í fjallgöngu þegar hann fékk fyrir hjartað. Mennirnir hringdu eftir hjálp um fimmleytið.
Björgunarsveitarmennirnir náðu tindinum í þann mund sem þyrla Landhelgisgæslunnar bar að. Hún flutti manninn á sjúkrahús í Reykjavík. Hann var með meðvitund. Allt að þrjátíu björgunarsveitarmenn frá Eskifirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði tóku þátt í aðgerðinni, segir Baldur Pálsson, í svæðisstjórn björgunarsveita á Austurlandi.
-Auglýsing-
www.ruv.is 11.09.2007
-Auglýsing-