-Auglýsing-

Tekið á vanda vegna blóðþrýstingslyfja

Velferðarráðherra hefur ákveðið breytingu á reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga við kaup á lyfjum. Með því er tekið á vanda sem kom upp um síðustu mánaðamót þegar veruleg verðlækkun á einu blóðþrýstingslyfi í flokki ACE-hemla leiddi til þess að nokkur blóðþrýstingslyf féllu úr greiðsluþátttöku.

Með breytingunni er komið til móts við ábendingar lækna og er sjúklingum tryggður aðgangur að þeim blóðþrýstingslyfjum sem höfðu greiðsluþátttöku í febrúar síðastliðnum.

-Auglýsing-

Nú er svo komið að verð blóðþrýstingslyfja í flokki ACE-hemla er almennt orðið það lágt að talið er óþarfi að verðstýra notkun þeirra með skilyrtri greiðsluþátttöku.

Hins vegar gildir annað um blóðþrýstingslyf í flokki Angíótensín II blokka og önnur lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið. Það ákvæði 4. gr. reglugerðarinnar sem breytingin tekur til nær til þessara tveggja flokka blóðþrýstingslyfja og gerir ráð fyrir að viðmiðunarverð fyrir greiðsluþátttöku sjúkratrygginga verði 50% hærra en lægsta einingarverð í skömmtuðum lyfjaformum í þeim flokkum.

- Auglýsing-

Talið er að umrædd breyting bæti fyrirkomulag þeirrar verðstýringar sem tekin var upp með breytingu á reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í lyfjakostnaði sjúklinga árið 2009.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum til birtingar en hún tekur gildi 1. apríl 2012.

www.mbl.is 09.03.2012

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-