Af hverju að styrkja hjartalif.is?
________________________________________
- Upplýsingasíðan hjartalif.is er einstök fyrir margar sakir. Að henni standa einstaklingar sem hafa persónulega reynslu af hjartasjúkdómum og hafa hugsjón um framtíð hennar.
- Efni vefsíðunnar er faglegt og vandað.
- Síðan mætir upplýsingaþörf sem ekki er mætt á öðrum vettvangi.
- Á henni eru vandaðir tenglar, greinar, pistlar og fréttir sem tengjast hjartaheilsu.
- Vefsíðan höfðar til beggja kynja. Bæði karlar og konur fá hjartasjúkdóma og bæði karlar og konur eru aðstandendur þeirra sem fá hjartasjúkdóma.
- Vefsíðan höfðar til allra aldurshópa. Þó þeir séu oftast eldri sem fá hjartasjúkdóma þá eru hjartasjúklingar að yngjast og þeim er að fjölga. Einnig eru aðstandendur þeirra á öllum aldri.
- Hjartalif.is fær margar heimsóknir og þeir sem koma staldra lengi við og skoða mikið efni. Mikill hluti þeirra sem koma á síðuna, koma aftur síðar.
- Málefnið er okkur öllum hjartfólgið.
Fyrir þá sem vilja styrkja starf okkar beint er hægt að leggja inn á reikning okkar í Landsbankanum. Kennitalan okkar 660220-0620 og banka, höfuðbók og reikningsnúmerið okkar er 0133-15-200642.
Hjartanskveðjur
Björn Ófeigsson
bjorn@hjartalif.is