Í fullorðnum manni vegur hjartað 200 til 300 grömm og stærð þess er á við krepptan hnefa. Á hverri einustu mínútu dælir hjartað um 5 lítrum af blóði um líkama okkar. Þetta gerir um 2000 lítra á sólhring í heilbrigðum einstaklingi sem er ekkert smáræði. Það er svo undir okkur komið að hugsa vel um þetta magnaða líffæri og hlú að því.
Hér eru nokkrar skemmtilega hugmyndir sem fengnar eru úr ýmsum áttum um hvernig við getum hjálpað til við að hlúa að hjartanu okkar og bæta heilsuna. Eins og gengur má vera að sumt eigi ekki við þig eða einfaldlega henti þér ekki en þá er bara að taka það til sín sem passar.
Mjólkurglas á dag kemur hjartanu í lag
Þetta er umdeilt. Í Amerískri rannsókn komust vísindamenn að þeirri niðurstöðu að þeir sem neyta mikillar mettaðrar fitu þá voru þeir sem neyttu mjólkurvara að minnsta kosti þrisvar sinnum á dag með mun lægri blóðþrýsting en þeir sem neyttu minni mjólkurvara.
Eins og allir vita getur hár blóðþrýstingur valdið skemmdum á æðakerfi líkamans sem á móti eykur hættuna á hjartaáföllum. Það skyldi þó aldrei vera að mjólk væri góð eftir allt.
Hreyfðu þig
Það eru til margar gerðir af líkamsrækt og öll heilsurækt er góð fyrir hjartað. Þrjátíu mínútna tai chi-tími getur einnig stuðlað að lækkun blóðþrýstings. Í einni rannsókn kom fram að þátttakendur í 12 vikna tai chi-námskeiði náðu að lækka blóðþrýsting sinn um allt að 16 stig. Tai chi byggir á hægum og slakandi hreyfingum og er gríðarlega vinsæl heilsurækt víða um heim. Aðalmálið er samt sem áður hreyfing, hvernig hreyfing er aukaatriði.
Borðaðu fisk og lækkaðu hvíldarpúlsinn
Fiskur er ekki bara góður fyrir heilann heldur er hann líka góður fyrir hjartað. Hár hvíldarpúls getur gefið til kynna aukna hættu á hjartakvillum. Fiskát getur stuðlað að lægri hvíldarpúls og því minnkað hættuna á hjartaáföllum. Í rannsókn sem gerð var við Harvard háskóla kom í ljós að fólk sem borðaði fisk fimm sinn um eða oftar í mánuði var að jafnaði með 3,2 færri slög á mínútu heldur en þeir sem boðuðu fisk einu sinni í viku. Vísindamennirnir í Harvard vilja eigna Omega-3 fitusýrunum í fiskinum heiðurinn en lax og túnfiskur eru t.d. með háir í Omega-3 fitusýrum. Lágur hvíldarpúls er talin hafa verndandi áhrif á hjartað.
Fáðu þér ávexti
Allir vita að ávextir eru hollir. Rannsóknir hafa sýnt fram á að safi úr granateplum getur komið veg fyrir að kransæðarnar verði harðar og í sumum tilfellum jafnvel snúið við því ferli sem þegar er hafið. Í Amerískri rannsókn kom fram að þessi sami safi getur minnkað uppsöfnun kólesteróls í músum um 30 prósent. Einnig sýndu hjartafrumur sem fengu vænan slurk af safanum, 50 prósent aukningu á nítrus oxíði (nitric oxide) sem er efni sem berst gegn kölkun æða.
Sojasósa leynir á sér
Smá sojasósa á hverjum degi getur gert góða hluti fyrir heilsuna. Sojasósa er sneisafull af andoxunarefnum og inniheldur 10 sinnum meira af þeim en vín gerir. Í rannsókn sem gerð var við háskólann í Singapúr þótti sannað að sojasósa geti dregið verulega úr fylgikvillum reykinga, offitu og sykursýki. Þó er rétt að vara við því að margar sojasósur hafa hátt salthlutfall sem rétt er að hafa í huga og því er mælt með að velja sér sojasósu sem hefur minna saltmagn.
Hláturinn lengir lífið
Þetta er ekki bara klisja heldur heilagur sannleikur. Í rannsókn sem gerð var við háskólann í Baltimore á sínum tíma var þátttakendum skipt í tvo hópa. Annar hópurinn var látinn horfa á gamanmyndina There´s something about Mary á meðan hinn hópurinn horfði á stríðsmyndina Saving Private Ryan. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að þeir sem horfðu á gamanmyndina voru með mun betra og heilbrigðara blóðflæði eftir á heldur en hinn hópurinn. Því er mælt með því að fólk bresti í hlátur í að minnsta kosti 15 mínútur á
degi hverjum. Lífsgleði og jákvætt hugarfar er gott veganesti.
Sofðu vel og hugaðu að svefngæðum og svefnvenjum
Konur sem sofa minna en fimm klukkustundir á hverri nóttu eru 30 prósentum líklegri til þess að fá einhverja hjartakvilla en þær sem sofa átta klukkustundir. Þetta kemur fram í rannsókn sem framkvæmd var við kvennaspítala í Boston. Of lítill svefn getur raskað hormónum líkamans ásamt því að fara illa með blóðsykurinn og blóðþrýstinginn. Samt er rétt að benda á að svefngæði eru oft mikilvægari en endilega að ná akkúrat átta tíma svefni. Góðar svefnvenjur eru því mikilvægar.
Andaðu djúpt
Fólk getur lækkað blóðþrýsting sinn með því einu að anda. Í stað þess að anda 16 til 19 sinnum á hverri mínútu, eins og fólk gerir almennt, er ráðlegt að í 15 mínútur á degi hverjum dragi fólk andann 10 sinnum á mínútu. Rannsóknir sýna að hröð og grunn öndun tefur fyrir því að líkaminn losi sig við salt úr líkamanum. Salt er einn af þeim þáttum sem hækka blóðþrýsing. Andaðu rólega.
Tónlist róar hjartað
Hópur við Oxford háskóla hefur komist að því að hæg hugleiðslutónlist með réttum takti getur leitt til jákvæðrar minnkunar á hjartslætti fólks. Tónlist með hraðari takti á borð við þungarokk hraðar hins vegar á önduninni og blóðrásinni. Því væri kjörið að hlusta á rólega og seiðandi tónlist sér til heilsubótar.
Það þarf þess vegna ekki að vera mjög flókið að gera hjartanu gott og eiga gott hjartalíf.
Björn Ófeigs.