Dagana 27. júlí til 4. ágúst næstkomandi verða haldnir heimsleikar líffæraþega í Durban í Suður Afríku. Alls taka þrír Íslendingar þátt í leikunum og verður þetta í fyrsta skipti sem Íslendingar eru með.
Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að undirbúningi þátttöku Íslendinganna en fyrst var auglýst eftir áhugasömum líffæraþegum sem áhuga höfðu á því að taka þátt og sett var upp æfingaplan.
Þar sem líffæraþegar eru brothættur hópur hafa einhverjir helst úr lestinni á síðustu mánuðum en nú er ljóst eins og áður sagði að þrír íslendingar munu taka þátt, en þeir eru:
Björn Magnússon nýraþegi keppir í bæði einstaklings- og liðakeppni í golfi.
Laufey Rut Ármannsdóttir nýraþegi keppir í 100 og 200 metra spretthlaupi og 5 km hlaupi.
Kjartan Birgisson hjartaþegi keppir í einstaklings- og liðakeppni í golfi, badminton og 100 metra og 5 km hlaupum.
Keppendur munu flytja fréttir af gangi mála fram að leikunum og síðan verða keppendur með dagbók frá leikunum á meðan á þeim stendur.
Hópurinn hefur stofnað síðu á Fésbókinni þar sem hægt er að nálgast fréttir af hópnum.
Hér að finna tengil inn á vefsíðu leikanna
Myndin er fengin af fésbókarsíðu hópsins en á henni eru frá vinstri Kjartan Birgisson, Laufey Rut Ármannsdóttir og Björn Magnússon