Leik-og söngkonan Barbra Streisand hefur gefið 5 milljónir dala, andvirði 372 milljóna króna, til hjartadeildar Cedars Sinai sjúkrahússins í Bandaríkjunum.
Markmiðið með framlaginu er að rannsaka hjartasjúkdóma kvenna, og í tilkynningu frá Streisand segir að þörf sé á að upplýsa konur um hjartasjúkdóma, og leiðir til þess að koma í veg fyrir þá.
-Auglýsing-
Að sögn yfirmanns hjartadeildar Cedars Sinai eru hjartasjúkdómar eitt helsta banamein kvenna.
www.mbl.is 16.04.2008
-Auglýsing-