Ein magnyltafla á dag kann að hægja á heilahrörnun og vitsmunaskerðingu hjá eldra fólki. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar sænskra vísindamanna.
Í rannsókninni var fylgst með 500 konum á aldrinum 70 til 92 ára á fimm ára tímabili. Andleg færni þeirra var mæld við upphaf rannsóknartímabilsins og við lok þess. Í ljós kom að konur sem tóku eina töflu af asperíni á dag eða hjartamagnyl vegna hættu á hjarta og æðasjúkdómum stóðu sig betur í andlegri færni og sýndu hægari hrörnun en aðrar.
Rannsóknarmenn segja hins vegar að ekki virðist sem asperínið hafi áhrif á það hverjar þróuðu með sér elliglöp. Þá er varað við aukaáhrifum af magnyl- og asperín eins og blæðingum og því að langtímaáhrif magnyl séu ókunn.
Dr. Simon Ridley yfirmaður Alzheimers rannsóknarstofnunarinnar í Bretlandi segir að niðurstaða rannsóknarinnar gefi innsýn inn í mikilvægi heilbrigðrar hjarta og æðastarfsemi fyrir andlega færni manna. Mikilvægt sé hins vegar að fólk sé ekki sjálft að skammta sér magnyl heldur sé það gert í samráði við lækna.