Samningurinn var gerður að ósk heilbrigðisráðuneytisins eftir ráðgjöf frá líffæraígræðslunefnd sem lagði til að gengið yrði til samninga við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg um líffæratöku og ígræðslu líffæra fyrir íslenska sjúklinga. Fulltrúi Sjúkratryggingastofnunar Íslands undirritaði samninginn fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda hér en af hálfu háskólasjúkrahússins í Gautaborg er það Sahlgrenska International Care AB, og Sahlgrenska I.C. sem formlega gera samninginn. Hann er gerður að undangengnum samningaviðræðum við helstu sjúkrahús á Norðurlöndunum, hann gildir til 2010 og er til eins árs í senn, en framlengist sjálfkrafa um ár sé honum ekki sagt upp sex mánuðum áður en hann á að renna úr gildi. Með samningnum er íslenskum sjúklingum tryggður lágmarksbiðtími eftir ígræðslu líffæra. Biðtími samkvæmt honum er mun styttri en var í fyrri samningi og kostnaður við nýjan samning miðað við tilteknar forsendur um þörf fyrir líffæri er rúmar sex hundruð milljónir króna á ári. Gert er ráð fyrir að samningurinn við Sahlgrenska verði um 18% ódýrari en samningurinn sem nú er í gildi.
www.mbl.is 27.10.2009