Það er vægt til orða tekið að könnun sviðsráðs heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands sé sláandi en fjallað var um málið í Kastljósi í gærkvöldi.
Ljóst er að framtíð Landspítala og heilbrigðiskerfisins í heild sinni er ekki björt samkvæmt könnunni.
Í könnunni kemur fram að 7,8% þeirra sem ljúka munu læknanámi frá Háskóla Íslands næstu tvö ár sjá Landspítalann fyrir sér sem sinn framtíðarvinnustað.
Þátt tóku nemar í læknisfræði, hjúkrunarfræði, sjúkraþjálfun og lífeinda- og geislafræði spurðir um viðhorf sín til heilbrigðismála og framtíðaráætlanir.
Ásdís Anna Björnsdóttir, formaður sviðsráðs heilbrigðisvísindasviðs segir málið alvarlegt. Nemendur vilji vinna á Íslandi en fyrst þurfi að gera róttækar breytingar.
Í könnuninni kemur fram að 8% hafa jákvæð viðhorf til heilbrigðismála hér á landi og lítill hluti telur aðstöðu inni á spítalanum við hæfi.
Það er því ljóst að það duga engar smáskammtalækningar til að rétta við hallan á heilbrigðiskerfinu og reisa langveikan Landspítala úr rekkju.
Hér má sjá umfjöllun Kastljóss um málið