
Það kannast líklega flestir við þetta. Það er komið kvöld og maður sest niður til að slaka á. Áður en maður veit af er komið smá snarl, brauðsneið, kex eða jafnvel eitthvað sætt rétt áður en farið er að sofa.
Þetta virðist oft saklaust en rannsóknir síðustu ára benda til þess að tímasetning matar geti haft meiri áhrif á hjartaheilsu en margir gera sér grein fyrir.
Sérstaklega þegar kemur að blóðsykri, blóðþrýstingi, svefni og álagi á hjarta- og æðakerfið yfir nóttina.
Líkaminn vill ró á kvöldin
Líkaminn vinnur eftir ákveðinni líkamsklukku. Þegar líður á kvöldið hægir smám saman á efnaskiptunum og líkaminn undirbýr sig fyrir svefn og endurheimt. Þegar við borðum þunga eða orkumikla máltíð seint um kvöld þarf líkaminn aftur á móti að fara í vinnu við meltingu og stjórnun blóðsykurs á þeim tíma sem hann á helst að vera í hvíld.
Rannsóknir hafa sýnt að át seint á kvöldin getur valdið hærri næturblóðsykri og aukið sveiflur í insúlíni. Það getur einnig haft áhrif á næturblóðþrýsting sem skiptir miklu máli fyrir hjartaheilsuna.
Venjulega á blóðþrýstingur að lækka yfir nóttina þegar líkaminn hvílist. Ef það gerist ekki getur það aukið álag á hjartað til lengri tíma.
Svefninn getur versnað
Margir finna líka fyrir því að sofa verr eftir þunga kvöldmáltíð eða mikið kvöldsnarl. Það er ekkert skrítið. Líkaminn er enn að melta matinn þegar við reynum að sofna.
Slæmur svefn tengist síðan aukinni hættu á háþrýstingi, sykursýki 2, offitu og hjarta- og æðasjúkdómum. Þetta verður því oft ákveðinn vítahringur þar sem át seint á kvöldin hefur áhrif á svefninn og lakari svefn hefur síðan áhrif á hjartað.
Fólk með bakflæði, kæfisvefn eða hjartabilun finnur oft sérstaklega fyrir þessu.
Skiptir öllu máli hvað við borðum?
Já, það getur skipt miklu máli. Það er talsverður munur á því að fá sér epli, skyr eða handfylli af hnetum annars vegar og sykurríkt snakk, kökur eða mikið magn af unnum kolvetnum hins vegar.
Sykur og mikið magn kolvetna seint á kvöldin getur valdið meiri blóðsykurssveiflum og auknu álagi á líkamann yfir nóttina.
Það þýðir þó ekki að fólk þurfi að fara svangt að sofa. Fyrir suma getur létt og próteinríkt kvöldsnarl jafnvel hjálpað til við betri svefn og stöðugri blóðsykur.
Smá breytingar geta skipt máli
Stundum þarf ekki stórar breytingar til að bæta líðanina. Að reyna að borða síðustu stærri máltíðina aðeins fyrr á kvöldin og draga úr sykri og þungu snakki rétt fyrir svefn getur haft jákvæð áhrif bæði á svefn, orku og hjartaheilsu.
Við hugsum oft um hvað við borðum en stundum gleymum við að hvenær við borðum getur líka skipt máli.
Hjartað kann vel að meta ró yfir nóttina.
Björn Ófeigs.
Heimildir
American Heart Association – Healthy Eating
Sleep Foundation – Is It Bad To Eat Before Bed?
Harvard Health – Harvard study: Curb late-night eating to stave off weight gain
Cleveland Clinic – Is Eating Before Bed Bad for You?































