Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, verður gestur í þætti Mörthu Stewart á fimmtudag. Mun Kári fjalla um greiningarpróf fyrirtækisins, deCODEme. Í Bandaríkjunum er febrúar í ár tileinkaður hjartanu og hjartasjúkdómum. Lífstílsþáttur Stewart, The Martha Stewart Show, nýtur mikilla vinsælda í bandarísku sjónvarpi.
Martha Stewart kom til Íslands á sínum tíma í boði forsetahjónanna.
-Auglýsing-
Martha Stewart var dæmd árið 2004 fyrir að nýta sér innherjaupplýsingar er hún seldi hlutabréf sín í líftæknifyrirtækinu ImClone daginn áður en verðið á þeim hrundi. Var áætlaður hagnaður hennar af sölunni 52.000 Bandaríkjadalir.
Nánari upplýsingar um greiningarprófið
- Auglýsing-
www.mbl.is 03.02.2009
-Auglýsing-