Íslensk erfðagreining greinir frá því í dag að niðurstöður samanburðarannsókna á fyrsta fasa á hjartalyfinu DG051, sem ætlað er að koma í veg fyrir hjartaáföll, hafi verið jákvæðar.
Alls tóku 40 heilbrigðir einstaklingar þátt í rannsókninni og var lyfið prófað á þeim á vikutímabili.
-Auglýsing-
Meðal helstu niðurstaðna má nefna að lyfið fór vel í það einstaklinga sem það var prófað á, en þeim voru gefnir nokkrar mismunandi skammtastærðir. Þá hafði lyfið engar skaðlegar aukaverkanir á einstaklingana.
Þá dró lyfið úr bólguvakanum LTB4 sem gegnir mikilvægu hlutverki í hjartaáföllum.
- Auglýsing-
Frétt á vef Íslenskrar erfðagreiningar.
Mbl.is. 1.5.2007
-Auglýsing-