-Auglýsing-

Hvenær er mæði eðlileg og hvenær ætti hún að vekja athygli?

Það er auðvelt að venjast mæðinni smám saman og kenna um aldri, lélegu form eða annríki. En líkaminn sendir okkur oft skilaboð löngu áður en alvarleg vandamál koma í ljós.

Ef það er eitt einkenni sem ég hef lært að bera virðingu fyrir á þeim rúmu tuttugu árum sem ég hef lifað með hjartabilun, þá er það mæðin. Hún getur verið saklaus en hún getur líka verið fyrsta merkið um að eitthvað sé að breytast eða eitthvað sé að.

Við verðum öll móð þegar við hlaupum eða göngum rösklega upp langan stiga, göngum bratta brekku eða tökum vel á í ræktinni. Það er eðlilegt. En stundum kemur mæðin við litla áreynslu eða jafnvel í hvíld. Þá er ástæða til að staldra við.

-Auglýsing-

Mæði er ekki sjúkdómur heldur einkenni sem getur átt sér margar skýringar. Hún getur verið saklaus og tímabundin, en hún getur líka verið fyrsta merkið um undirliggjandi hjarta- eða lungnasjúkdóm. Þess vegna er mikilvægt að kunna að greina á milli þess sem telst eðlilegt og þess sem ætti að fá okkur til að leita læknis.

Hvenær telst mæði eðlileg?

Það er fullkomlega eðlilegt að anda hraðar þegar líkaminn þarf meira súrefni. Til dæmis þegar þú:

- Auglýsing-
  • hleypur eða hjólar af krafti
  • gengur upp langa brekku
  • lyftir þungum hlutum
  • ert í miklum hita eða raka.

Í slíkum tilfellum á öndunin yfirleitt að jafna sig á nokkrum mínútum eftir að áreynslu lýkur.

Hvenær ætti mæðin að vekja athygli?

Það eru ákveðin einkenni sem rétt er að taka alvarlega.

- Auglýsing -

Leitaðu til læknis ef þú finnur að:

  • þú verður móður við verkefni sem áður voru auðveld
  • mæðin hefur aukist smám saman yfir vikur eða mánuði
  • þú þarft að stoppa oftar en áður vegna andþyngsla
  • þú vaknar á nóttunni vegna mæði
  • þú þarft að hafa hærra undur höfðarlaginu en áður til að geta sofið.

Þetta geta verið merki um hjartabilun, lungnasjúkdóm eða aðra undirliggjandi kvilla sem mikilvægt er að greina tímanlega.

Einkenni sem krefjast tafarlausrar aðstoðar

Í sumum tilfellum þarf að leita strax á bráðamóttöku eða hringja í 112.

Það á sérstaklega við ef mæðinni fylgir:

  • mikill eða nýr brjóstverkur
  • köld svitamyndun
  • yfirlið eða yfirliðstilfinning
  • blámi á vörum eða fingrum
  • mjög hröð eða erfið öndun í hvíld.

Slík einkenni geta bent til alvarlegs hjarta- eða lungnavandamáls sem þarf tafarlausa meðferð.

Hverju getur þú sjálfur fylgst með?

Ef þú ert með hjartasjúkdóm eða hjartabilun getur verið gagnlegt að fylgjast með breytingum á eigin líkama.

Spyrðu þig til dæmis:

  • Get ég gengið sömu vegalengd og fyrir mánuði?
  • Verð ég móðari við dagleg heimilisstörf?
  • Hefur þyngdin aukist hratt á fáeinum dögum?
  • Finn ég meiri bjúg á fótum eða ökklum?
  • Hefur hvíldarpúlsinn eða svefngæðin breyst?

Stundum eru það litlu breytingarnar sem gefa fyrstu vísbendingarnar um að eitthvað sé að breytast.

Að lokum

Það er auðvelt að venjast mæðinni smám saman og kenna um aldri, lélegu form eða annríki. En líkaminn sendir okkur oft skilaboð löngu áður en alvarleg vandamál koma í ljós.

Ef þú tekur eftir því að þú verður móðari en áður eða mæðin takmarkar daglegt líf er skynsamlegt að ræða það við lækni. Því fyrr sem orsökin finnst, þeim mun meiri líkur eru á að hægt sé að bregðast við í tíma.

Björn Ófeigs.


Heimildir

  1. American Heart Association. Heart Failure Signs and Symptoms
    https://www.heart.org/en/health-topics/heart-failure/warning-signs-of-heart-failure
  2. European Society of Cardiology. 2023 Focused Update of the ESC Guidelines for Heart Failure
    https://www.escardio.org/guidelines/clinical-practice-guidelines/all-esc-practice-guidelines/focused-update-on-heart-failure/
  3. Mayo Clinic. Heart failure – Symptoms and causes
    https://www.mayoclinic.org/diseases-conditions/heart-failure/symptoms-causes/syc-20373142
  4. Cleveland Clinic. Congestive Heart Failure: Symptoms, Stages & Treatment
    https://my.clevelandclinic.org/health/diseases/17069-heart-failure-understanding-heart-failure
  5. Heart Failure Matters (European Society of Cardiology). Shortness of breath: when to get help
    https://www.heartfailurematters.org/warning-signs/shortness-of-breath/

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.
-Auglýsing-

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-