Hjarta og æðasjúkdómar eru stærsti orsakavaldur örorku og dauðsfalla í heiminum og fer vandinn ört vaxandi.
Hjarta og æðasjúkdómar fella fleiri á hverju ári en nokkrar aðrar orsakir en 17, 3 milljónir manna létust árið 2008, þar af 3 milljónir áður en þeir náðu sextíu ára aldri.
Ég rakst á athyglisverðar tölur frá Bandaríkjunum þar sem er búið að taka saman tölulegar staðreyndir um hjarta og æðasjúkdóma kvenna þar í landi.
Í Bandaríkjunum er talið er að um 8 milljónir kvenna lifi með hjartasjúkdóm. 10% kvenna á aldrinum 45-64 ára og 25% þeirra sem eru 65 ára og eldri.
- Um 6 milljónir kvenna eiga sögu um hjartaáfall og eða brjóstverki eða bæði.
- Nærri 13% kvenna í Bandaríkjunum sem eru 45 ára og eldri hafa fengið hjartaáfall.
- 435 þúsund Bandarískra kvenna fá hjartaáfall á hverju ári og eru um 83 þúsund þeirra undir 65 ára aldri og 9 þúsund eru undir 45 ára aldri. Meðalaldur þeirra er 70,4 ár.
- 4 milljónir kvenna þjást af brjóstverkjum og 47 þúsund þeirra voru lagðar inn á spítala 1999.
Dánartíðni
- Hjartasjúkdómar er helsta dánarorsök kvenna í Bandaríkjunum og 32% þeirra sem látast á ári hverju látast úr hjartasjúkdómum.
- 43% af dauðsföllum kvenna í Bandaríkjunum á hverju ári eða nærri 500 þúsund má rekja til hjarta eða æðasjúkdóma.
- Um 267 þúsund kvenna deyja á hverju ári af völdum hjartáfalla. Hjartáföll valda dauða SEX sinnum fleiri kvenna en brjóstakrabbamein í Bandaríkjunum.
- 31, 837 konur deyja árlega af hjartabilun eða 62,6% allra þeirra sem að deyja úr hjartabilun samanlagt.
Samanburður við karla
- 38% kvenna og 25% karla deyja á fyrsta ári eftir að fyrsta hjartaáfall er greint.
- 35% kvenna og 18% karla sem lifa af hjartaáfall fá annað hjartaáfall innan sex ára.
- 46% kvenna og 22% karla sem lifa af hjartaáfall eru með skerta starfsorku vegna hjartabilunar innan sex ára frá greiningu.
- Það eru meira en tvöfalt meiri líkur á því að konur deyi í hjáveituaðgerð heldur en karlar.
Í Bandaríkjunum eru minni líkur á því að konur fái beta-blokkera, ACE blokkera eða jafnvel aspirín eftir að hafa fengið hjartaáfall. Ég geri ekki ráð fyrir því að þetta sé svona hér á landi.
Fleiri konur en karlar deyja árlega af hjartasjúkdómum í Bandaríkjunum þrátt fyrir þá staðreynd að konur séu aðeins:
- 33% þeirra sem fara í hjartaþræðingu fá stoðnet eða fara í hjáveituaðgerð
- 28% þeirra sem fá gangráð
- 36% þeirra sem fara í opna hjartaskuðraðgerða
Þá er einnig sláandi að konur eru aðeins 25% þátttakenda í öllum hjartatengdum rannsóknum sem framkvæmdar eru í Bandaríkjunum.
Heimildir :National Center on Health Statistics; National Heart og Lung and Blood Institute