Hjartaáföllum hefur fækkað um rúm tuttugu prósent eftir að reykingabann á opinberum stöðum var innleitt hér á landi fyrri túmum tveimur árum. Hjartalæknir á Landspítalanum segir þetta sýna hve óbeinar reykingar séu hættulegar heilsu fólks.
Rétt um átján prósent íslensku þjóðarinnar reykir í dag samanboriði við um þrjátíu prósent fyrir nokkrum árum síðan.
1. júní 2007 var innleitt bann við reykingum á öllum opinberum stöðum og veitingahúsum. Á Landspítalanum var gerð rannsókn á öllum þeim sjúklingum sem komu í kransæðaþræðingu á fimm mánaða tímabili fyrir og eftir reykingabannið. Þetta var fólk sem fengið hafði hjartaáfall eða hjartadrep.
Niðurstaðan sýndi að hjartaáföllum hjá körlum hafði fækkað um 21% eftir að reykingabannið var innleytt. Ekki var merkjanlegur munur hjá konunum. Þórainn Guðnason, hjartalæknir flutti um þetta erindi á nýlegu Evrópuþingi hjartalækna í Barselóna.
Þórarinn segir dánartíðni af völdum reykinga skipta hundruð ár hvert hér á landi.
www.ruv.is 05.09.2009
-Auglýsing-