Matreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson er hér með helgaruppskrift af dásemdarinnar grilluðum kjúklingalærum.
Einnig minni ég á uppskriftavef Holta hér til hliðar á síðunni þar sem allir geta fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi fyrir helgina.
-Auglýsing-
- 4 msk. þurrristuð sesamfræ
- 2 msk. hnetusmjör
- 2 msk. hunang
- 2 msk. sesamolía
- 1?½ dl terriakisósa
- ½ chili-pipar, steinlaus og smátt saxaður
- 2 msk. balsamedik
- 1 tsk. nýmalaður pipar
- 1?½ dl olía
Setjið allt nema olíu í skál og blandið vel saman. Hellið þá olíunni í skálina í mjórri bunu og þeytið vel í á meðan með písk.
- 2 msk. olía
- 8-12 kjúklingalæri
- 1 msk. kjúklingakrydd
Penslið lærin með olíu og kryddið með kjúklingakryddinu. Grillið á milliheitu grilli í u.þ.b. 20 mínútur eða þar til kjarnhiti sýnir 70°C.
- Auglýsing-
Takið þá ¼ af sósunni og penslið lærin með henni á báðum hliðum. Grillið í 2 mínútur á hvorri hlið. Berið lærin fram með restinni af sósunni og t.d. grilluðum sætum kartöflum og grænmeti.
-Auglýsing-