Matreiðslumeistarinn Úlfar Finnbjörnsson er hér með helgaruppskrift af dásemdarinnar grilluðum, sterkkrydduðum kjúklingabringum með grilluðum maís, rauðlauk og portobellosveppum.
Einnig minni ég á uppskriftavef Holta hér til hliðar á síðunni þar sem allir geta fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi fyrir helgina.
Fyrir 4
2 msk. olía
800 g kjúklingabringur
1 tsk. paprikuduft
1 tsk. chili-flögur
1 tsk. broddkúmen
1 tsk. kanill
1 tsk. salt
Penslið bringurnar með olíu. Blandið kryddinu saman og kryddið bringurnar á öllum hliðum. Grillið á milliheitu grilli í 13-15 mínútur eða þar til kjarnhiti sýnir 70°C. Berið bringurnar fram með portobellosveppum og til dæmis grilluðum rauðlauk, maís og sætum kartöflum.
Grillaðir portobellosveppir
3 stórir portobellosveppir
Olía eða olíusprey
1 msk. timjanlauf
Salt og nýmalaður pipar
3 sneiðar Stóri Dímon
Penslið sveppina með olíu og kryddið með salti og pipar. Grillið í 2 mínútur á fan-hliðinni. Snúið sveppunum við og stráið timjanlaufum í hattana og leggið ostsneið yfir. Grillið í 5 mínútur í viðbót.