-Auglýsing-

Algengar hjartarannsóknir

Hjartaþræðing á LSH. Mynd/LSH

Það eru ýmsar rannsóknir sem geta gefið vísbendinu um ástand hjartans og sumar eru einfaldar í framkvæmd eins og blóðprufa svo dæmi sé tekið. Þegar minnsti grunur vaknar um að ekki sé allt með felldu varðandi hjartað þá er betra að fara í fleiri rannsóknir en færri.

Á þetta jafnt við um þá sem ekki hafa verið greindir ennþá eða hina sem lifa með hjarta eða æðasjúkdóm, gott eftirlit er lykilatriði.

-Auglýsing-

Dæmi eru um að fólk sem telur sig hafa farið í “tékk” hefur lent í vandræðum og jafnvel fengið áfall skömmu síðar. Þetta á t.d við um ógreindan kransæðasjúkdóm sem getur verið erfitt að greina eins og dæmin sanna auk þess sem ógreindur hjarta og æðasjúkdómur getur leitt til hjartaáfalls eða annarra áfalla. Enn og aftur, eftirlit hjá sérfræðingi er mikilvægt.

Þess má einnig geta að þriðjungur sjúklinga sem greinast með bráðakransæðastíflu eða fá hjartaáfall hafa ekki dæmigerðan brjóstverk þannig að það er aldrei of varlega farið.

- Auglýsing-

Hjartatengdar blóðprufur

Hjartaensím

Efni sem losna frá hjartavöðvafrumum við súrefnisþurrð eins og verður við kransæðastíflu. Oftast eru mæld þrjú ensím, þ.e. CK og CKMB, einnig TRÓPONÍN.

Blóðfita

Heildarmagn kólesteróls er mælt, einnig sá hluti þess sem nefnist „góða kólesterólið,“ eðaHDL-kólesteról og „slæma kólesterólið“ eða LDL. Þríglyseríðar eru gjarnan mældir en sú blóðfita tengist oft offitu og sykursýki.

Blóðþynning

Þegar gefin eru blóðþynningarlyf, t.d. Kóvar, er mikilvægt að fylgjast með blóðþynningargildum(INR). Draga þarf blóðprufu reglulega og í kjölfarið eru gefin fyrirmæli um hæfilegan skammt blóðþynningarlyfja.

Hjartahormón (BNP)

Gjarnan mælt þegar um hjartabilun er að ræða og skoðað í tengslum við einkenni og þróun sjúkdómsins.

Aðrar rannsóknir

Hjartalínurit (EKG)

Við ýmsa hjartasjúkdóma koma fram dæmigerðar breytingar á línuriti svo sem við kransæðastíflu og langvinnan háþrýsting, einnig greinast oft takttruflanir ef þær eru til staðar.

Ómskoðun af hjarta

Með hljóðbylgjum er unnt að fá fram mynd af hjartanu og meta þannig stærð hjartahólfa, þykkt hjartavöðvans og samdráttarhæfni. Einnig má sjá lokurnar og með sérstakri tækni meta hvort þær séu óþéttar eða hvort um þrengsli sé að ræða (Doppler). Hægt er að gera ómskoðun um vélinda og með því móti fást enn betri upplýsingar um starfssemi hjartans.

Holter

Þessi rannsókn felst í síritun á hjartariti, oftast í sólarhring og gengur sjúklingurinn þá með lítið upptökutæki á sér. Þessi rannsókn er gerð þegar leitað er eftir hjartsláttartruflunum.

Tölvusneiðmynd af kransæðum

Þessari tækni er beitt í völdum tilfellum þegar grunur leikur á að um kransæðasjúkdóm geti verið að ræða. Hjartasérfræðingar geta í ljósi niðurstaðna metið þörf á frekari rannsóknum/meðferð. Segulómun: Í ákveðnum tilvikum er þessari tækni beitt til að meta stærð og staðsetningu hjartadreps. Einnig er þessari aðferð beitt í vaxandi mæli við greiningu meðfæddara hjartagalla, við segaleit o.fl.

Gangráðsmæling

Með reglulegu millibili þurfa þeir sem hafa gangráð og/eða bjargráð að koma í eftirlit með starfssemi tækjanna þar sem m.a. er mældur líftími rafhlöðu og úrlestur úr hjartalínuriti og tölvu tækjanna.

Áreynslupróf/þolpróf

Ýmist er sjúklingurinn látinn ganga á þolbandi eða hjóla. Fylgst er með því hvort fram koma línuritsbreytingar á hjartariti og hvort sjúklingur fær einkenni sem bent gætu til kransæðasjúkdóms.

- Auglýsing -

Hjartaþræðing

Kransæðamyndataka er gerð þannig að örmjó slanga er þrædd inn í náraslagæð eða úlnlið og áfram upp til hjartans (vinstri þræðing). Með því að dæla skuggaefni í gegnum slönguna má ná fram röntgenkvikmynd af kransæðum og vinstri slegli. Ef um þrengsli er að ræða í kransæðum sjást þau yfirleitt mjög vel og unnt er að meta hversu mikil þau eru. Ef kransæðavíkkun er nauðsynleg er reynt að gera hana strax og kransæðamyndatakan er gerð þannig að önnur innlögn á sjúkrahús verður óþörf. Þegar þrætt er frá bláæð er farið um hægri hjartahólf og út í lungnaslagæðina. Það kallast hægri þræðing og með henni er metinn þrýstingur í blóðrásinni, súrefnismettun og einnig er unnt að mæla hversu miklu blóði hjartað dælir á hverri mínútu.
Þess má einnig geta að mögulegt er að þræða í gegn um úlnlið auk þess sem hjartaþræðingar eru mögulegar í gegnum æðar á hálsi.

Heimildir í þessum pistli koma úr ýmsum áttum en helstar þó frá vísindavefnum, landlækni.is, hjartaheill.is og hjarta.is

Munið eftir að læka við okkur á Facebook

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-