-Auglýsing-

Fékk hjartaáfall vegna sjónvarpsþáttar

Kelsey Grammer, sem er hvað frægastur er hlutverk sitt sem útvarpsgeðlæknirinn Frasier, hefur stigið fram og útskýrt hvað varð til þess að hann fékk hjartaáfall í maí síðastliðnum

Hinn 53 ára leikari var fluttur í skyndi á sjúkrahús á Havaí þar sem hann býr, eftir að hafa fengið hjartaáfall við brettaróður. Brettaróður (e. Paddleboarding) er vatnasport sem á rætur sínar að rekja til Havaí þar sem iðkendur standa á litlu bretti og róa áfram með róðrarspaða.

-Auglýsing-

Og Grammer er með það á hreinu að ástæða hjartaáfallsins sé sú að framleiðslu á sjónvarpsþáttum hans, Back To You, var hætt fyrr í sama mánuði.

„Þetta var mikill álagstími fyrir mig, og það kom mér mjög á óvart að klippt hefði verið á framleiðslu þáttanna,“ sagði Grammer við fjölmiðla, en hann er þessa dagana að kynna nýjustu kvikmynd sína Swing Vote.

- Auglýsing-

„En allt sem ekki drepur okkur, sem það gerði þó næstum því, styrkir okkur.“ sagði Grammer.

www.dv.is 25.07.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-