Þingmaður breska Verkamannaflokksins lést eftir að hann fékk hjartaáfall í gönguferð með fjölskyldu sinni. Þingmaðurinn David Taylor var ásamt fjölskyldu sinni í gönguferð í Derbyshire þegar hann hneig skyndilega niður.
Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem lífgunartilraunir báru engan árangur.
-Auglýsing-
Gordon Brown, formaður Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands, minntist Taylor í dag sem einum duglegasta þingmanns þjóðarinnar sem yrði sárt saknað. Hann var 63 ára.
Taylor komst nýlega í fréttirnar í heimalandinu eftir að Daily Telegraph greindi frá því að Taylor leyfði einni af dætrum sínum að búa í íbúð sem skattgreiðendur borguðu fyrir, þar sem hún borgaði litla sem enga leigu fyrir.
- Auglýsing-
www.dv.is 27.12.2009
-Auglýsing-