-Auglýsing-

Magnús Pétursson hættir sem forstjóri Landspítala

Anna Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar, og Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga, á Landspítala, munu sameiginlega gegna starfi forstjóra spítalans þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn, en Magnús Pétursson, forstjóri, lætur af störfum þann 1. apríl nk.

Gert er ráð fyrir að þessi skipan mála gildi til 1. september nk. eða þar til nýr forstjóri hefur verið ráðinn að loknu ráðningarferli. Heilbrigðisráðuneytið mun auglýsa starfið, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu.

Magnús Pétursson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri LSH í samkomulagi við heilbrigðisráðherra, en Magnús mun verða nýjum forstjóra spítalans innan handar eftir að hann hefur verið ráðinn.

Anna Stefánsdóttir hefur um árabil gegnt starfi framkvæmdastjóra hjúkrunar og Björn Zoëga hefur leyst Jóhannes M. Gunnarsson af sem framkvæmdastjóri lækninga undanfarna mánuði.

Jóhannes M. Gunnarsson tekur við nýju starfi

Gengið hefur verið frá því að Jóhannes M. Gunnarsson, framkvæmdastjóri lækninga á LSH, taki við starfi sem felur í sér að hafa yfirumsjón með tilteknum þáttum vegna byggingar nýs háskólasjúkrahúss. Jóhannes hefur undanfarið sinnt sambærilegu starfi á vegum LSH og fær leyfi frá starfi framkvæmdastjóra lækninga.

- Auglýsing-

www.mbl.is 14.03.2008

-Auglýsing-
-Auglýsing-
Björn Ófeigsson
Björn Ófeigsson
Björn er ritstjóri og ábyrgðarmaður hjartalif.is með brennandi áhuga á hjartans málefnum auk þess að vera sjálfur hjartabilaður og með gangráð/bjargráð.

Tengt efni

-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
Auglýsing
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-
-Auglýsing-