Hjartalíf.is á Facebook


Hjartamiðstöð Landspítala

Facebook   

LSH_inngangurHjartamiðstöð Landspítala tekur til starfa þann 13. apríl 2010.  Hjartamiðstöðin verður opin alla virka daga frá kl. 08:00 á mánudagsmorgni til kl. 20:00 á föstudagskvöldum. 

Verkefni hjartamiðstöðvar Landspítala verður að sinna öllum bráðakomum til hjartalækna og einnig dag- og göngudeildarstarfsemi sem tengist hjartasjúkdómum.  Starfsemin  verður á 10D og 10W og flyst þangað í áföngum. 

Störf yfirlæknis og hjúkrunardeildarstjóra hjartamiðstöðvar verða auglýst í haust þegar meiri festa er komin á starfsemina.  Í millitíðinni hefur verið ákveðið að setja þau Kristínu Sigurðardóttur deildarstjóra á 14G og Davíð O. Arnar yfirlækni á bráðamóttöku 10D sem stjórnendur á hjartamiðstöðinni til haustsins.
Einnig hefur verið ákveðið að vinna að sameiningu legudeilda fyrir hjartasjúklinga og verða gerðar ráðstafanir til að opna á milli legudeildanna 14E og 14G og í framhaldi verða þær sameinaðar í eina legudeild.  Unnur Sigtryggsdóttir deildarstjóri á 14E mun stýra deildunum/deildinni  þar til staða deildarstjóra á sameinaðri legudeild verður auglýst.  

www.landspitali.is 01.03.2010

Athugasemdir (0)
Skrifa athugasemd
Upplýsingar um þig:
Athugasemd:
Öryggisatriði
Vinsamlegast skrifaðu öryggis-kóðann sem þú sérð í myndinni hér fyrir ofan.
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 0045-5225-2800